Kattaeftirlitið
Sá kisu!
SÁ KISU! Kattaeftirlitið
Nýjung á heimsvísu
Kattaeftirlitið er nýtt, gríðarlega öflugt kerfi sem gerir almenningi kleift að senda inn ábendingar um umkomulausa ketti í rauntíma, með mynd, staðsetningu og upplýsingum sem birtast strax á lifandi korti.
Kerfið er hluti af Kattaskránni–The CATaloque, sem er fyrsta og eina kerfið sinnar tegundar í heiminum, og hefur nú verið eflt til muna með þessu nýja, einstaka eftirlitskerfi. Slíkt kerfi er ekki til annars staðar í heiminum og er appið eingöngu aðgengilegt á Íslandi.
Notandi sem sér kisu sem virðist vera í vanda (eða bara úti að labba) opnar appið, tekur mynd strax (sem skiptir miklu máli), velur síðan einfaldlega lýsingu á aðstæðum; til dæmis virðist týnd, svöng/þyrst, slösuð eða veik. Appið skráir sjálfkrafa GPS-staðsetningu og ábendingin birtist samstundis á Íslandskorti sem er aðgengilegt öllum bæði í gegnum app og á vefnum.
Á kortinu geta kattareigendur og dýravinir fylgst með ábendingum í rauntíma, séð myndir og upplýsingar og jafnvel rakið ferðir sama kattar ef fleiri en ein ábending berst. Þetta skapar öflugasta eftirlit með velferð katta sem mögulegt er að byggja upp.
Öflug stjórnstöð Kattaskráarinnar heldur utan um allar ábendingar, allt í rauntíma. Kerfið er ókeypis fyrir alla sem vilja taka þátt í kattaeftirliti og stuðla að betri velferð dýra. Eina sem þarf er snjallsími með appinu!
Nýja appið sameinar tvö öflug kerfi:
Kattaskránna–The CATaloque og Sá kisu! - Kattaeftirlitið.
Appið er aðgengilegt hér á:
www.kattaskrain.com - App
Smelltu hér til að fylgjast með ábendingum í rauntíma á Íslandskorti



